Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Kundalini vorhreinsun (jógaæfingar)

Kundalini vorhreinsun

Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan hentar sérstaklega vel til að hreinsa líkamann. Það byggir á kröftugri öndun og hreyfingu í takt við öndunina.

Kundalini jóga býður upp á möguleika að vinna markvisst með ákveðin líffæri eins og lifur og nýru sem sjá að mestu um afeitrun líkamans. Það getur einnig hjálpað til við að koma jafnvægi á heilu líffærakerfin eins og tauga, innkirtla og ónæmiskerfi.

Þegar eiturefni safnast í líkamanum verða til stíflur innra með okkur sem geta valdið kvíða, óþolinmæði og jafnvel reiði.

Nærum okkur á líkama, huga og sál !

Í lok hvers tíma er slökun og hugleiðsla.

Kennari:  Ragnheiður Katrín kundalínakennaranemi

Tímar 2 sinnum í viku Hópur 1 kl 13:00 mán og mið

                                              Hópur 2 kl 19:15 mán og mið

Kundalini streitulosun (jógaæfingar)

Kundalini streitulosun 

Flestir búa við mikið álag og þá getur auðveldlega safnast upp spenna og streita í líkama og huga. Streita og álag lækkar orkustuðul okkar og því neðar sem orka okkar fer þá virðumst við sækja í fæðu sem fylgir orkustuðli líkama og huga. 

Lítil orka kallar oftast á lággæðafæðu sem gerir lítið annað fyrir okkur en að gefa okkur fyllingu.

Kundalini jóga eftir forskrift Yogi Bhajan hentar sérstaklega vel til að losa um streitu, kvíða. ótta og jafnvel reiði. Það byggir á kröftugri öndun og hreyfingu í takt við öndunina.

Tilfinningar okkar þurfa að geta blómstrað og við eigum rétt á að leyfa gleðinni að blómstra. Æfingarnar hjálpa okkur einnig að sleppa gömlum tilfinningum sem halda okkur niðri.

Komum jafnvægi á huga, líkama og sál á markvissan hátt.

Í lok tímans er slökun og hugleiðsla.

Kennari: kundaliniyoga neminn Eygló Linda Hallgrímsdóttir

 Kennt 2 sinnum í viku kl 8 á þriðjud og fimmtud

Vornámsskeið í Lifandi húsi!

Með hækkandi sól komum við jafnvægi á huga, líkama og sál

næstu 4 vikna námsskeið frábærar nýungar

Foam Flex kl 7:10 á mán og mið hefst 30. apríl (djúpnudd með rúllum og átaksteygjur frá Bob Coley). Frábært til að losna við þreytu í vöðvum. Margir íþróttamenn í fremstu röð styðjast við æfingakerfi frá Bob Coley með frábærum árangri (losar út mjólkursýru hratt og vel eftir erfiðar æfingar)

Íþróttalið á höfuðborgasvæðinu hafa nú þegar nýtt sér þessa nýung með góðum árangri.

Kennari Eygló

 

Kundalini vorhreinsun kl 13:00 og 19:15 mán og mið hefst 30. apríl (unnið markvisst með nýru og lifur og koma jafnvægi á tauga, innkirtla og ónæmiskerfið)

Kennari Ragnheiður kundaliniyoganemi

 

Kundalini streitulosun kl 8:00 á þriðjud og fimmtud hefst (Unnið markvisst að hjálpa líkamanum að losa sig við kvíða, álag og streitu)

Kennari Eygló Linda kundaliniyoganemi

 

Táninga þrek f/ stúlkur 14 -16 ára kl 16:10 mán, mið hefst 30. apríl (fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar, góð lausn fyrir stúlkur sem eru ekki að finna sig í hópíþróttum eða hafa ákveðið að breyta til)

Kennari Eygló Linda

 

Hópeinkaþjálfun f/karlmenn kl 18:15 mán og fimmtud hefst 10. maí.  P.s nokkur pláss laus ef þú vilt byrja strax 30. apríl þá er það ekkert mál.  Krefjandi og mjög fjölbreyttar æfingar notum bolta, ketilbjöllur, laus lóð, líkamann og fl.

Kennari Eygló

 

Lúxus f/konur nýtt námskeið hefst 9. maí (uppselt á núverandi Lúxusnámsskeiðum).

Kennari Eygló

 

Rope yoga kl 9:10 á mán og mið og 6:15 á þrið og fimmtud yndislegt æfingakerfi fyrir alla sem hafa áhuga á að styrkja djúpvöðvana og koma meltingunni í betra lag.  Hægt að byrja 30. apríl og 3. maí 4 vikur.  P.s frábært til að kveikja á djúpvöðvunum eftir barnsburð.  Einnig gott fyrir fólk með hné eða ökkla vandamál.

 

Þjálfun og næring kl 10:30 mán og 11:15 mið og föstud  hefst 30. apríl

Fyrir konur sem vilja byrja mjög rólega, eru jafnvel með heilsufarsvandamál t.d gigt ,vefjagigt, ms, sykursýki og/eða í yfirþyngd osfrv. Peppspjall á mánud frá 10:30 til 11:15 og hægt að hitta mig undir 4 augu. Persónumiðuð nálgun bæði varðandi næringu og æfingar.

Kennari Eygló

 

Hugleiðslur í hádeginu kl 12:15  40 daga hugleiðsla byrjar ný 30. apríl allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Kennari Ragnheiður

Söfnunarbaukur á staðnum 50% fer í uppbyggingu kundaliniyoga (yogakubbar ofl sem okkur vantar en hin 50% fara í góðgerðamál, það væri gott að fá ábendingar helst að það sé á Árborgarsvæðinu)