Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Balance fitness

Mjög skemmtilegar og djúpar æfingar sem við höfum verið að taka saman í eitt æfingaprógramm. Þetta er blanda af  jafnvægisæfingum, stöðuvm, yoga, pilates og ketilbjölluæfingum (án þess að nota sjálfar bjöllurnar).

Við tengjum þessar æfingar oft saman í margliður og því lengri sem margliðurnar eru því erfiðari er æfingin.

Við notum líkamann og litla bolta. Best er að vera berfættur við æfingarnar og nota rólega tónlist.

Eins og í yoga snerta þessar æfingar við okkur tilfinningalega, hreyfir við orkustöðvum okkar og þú getur upplifað sterkar tilfinningar þegar æfingin er búin

Innri vinnsla líkamans getur átt sér stað í líkamanum alveg upp í viku eftir æfingarnar.

Þessar æfingar eru jafnt fyrir konur og karla rétt eins og yoga og pilates og allflestir geta verið með. Þessar æfingar fá ykkur til að svitna og brenna vel (góður eftirbruni).

Tónið upp líkamann og aukið djúpvöðvastyrk ykkar!

 

Bæði boðið upp á lokuð námskeið og opna tíma

Námskeið í 6 vikur 2 sinnum í viku verð 12.000

Kennarar:

Eygló Linda                          lokaðir tímar  á mán og mið kl 7:10