Hollur matur og heilsusamlegt líferni hjálpar þér að örva hugarafl þitt og þú nærð markvist utan um það sem þú villt framkvæma. Það léttir skapið, dregur úr streitu, eykur lífskraft þinn og stuðlar að sterkum og heilbrigðum líkama.
Borðaðu þig glaða(nn)!!
Hollur matur og heilsusamlegt líferni hjálpar þér að örva hugarafl þitt og þú nærð markvist utan um það sem þú villt framkvæma. Það léttir skapið, dregur úr streitu, eykur lífskraft þinn og stuðlar að sterkum og heilbrigðum líkama. Hægir á öldrun, stuðlar að sterku ónæmiskerfi, örvar frjósemi og kynhvöt, styrkir hjarta og æðakerfið, lækkar blóðfitu og of háan blóðþrýsting, regla á blóðsykri og margt fleira. Fær okkur til að ljóma og njóta augnabliksinns.
Hollur matur eru allar hreinar afurðir. Eitthvað sem er lítið unnið og ekki búið að fylla af salti, sykri eða einhverju öðrum efnum sem líkaminn kann ekkert á. Heilkorna brauð og kornmeti sem er óunnið, Brún hrísgrjón, sætar kartöflur, fiskur, hreinir kjötvöðvar, egg, mjólkurafurðir sem eru lítið unnar, t.d Ab-mjólk, jógúrt, skyr (allt án sætuefna og sykurs) hrærum frekar sjálf og sætum með náttúrusætu eins og Agavesíróp, eða ávöxtum (margir þola illa mjólkurvörur en þola jafnvel rjóma, smjör(saltlaust), kotasælu, AB- mjólk og lífrænt ræktað jógúrt), Sojaafurðir(hreinar), ávextir og grænmeti( lífrænt ræktað), Hnetur, möndlur og fræ, kókosflögur,döðlur. Einnig holl fita, olíur eins og kaldpressuð ólífuolía, hörfræolía, sesamolía, udo‘s olían og fleiri, lýsi, avocado og fl. Drekka vatn og jurtate, forðast mikið af kaffi, áfengi og sleppa helst gosi.
Til að fá sem mest magn af serotonin í þinn líkama, oft kallað gleðihormón líkamans, þá er gott að borða mikið af eftirfarandi fæðu. Í þessari fæðu er mikið magn af amínósýrunni Triptófan og umbreytist hún auðveldlega í serotonin sem líkaminn þinn nýtir sér. Gott að taka inn B- sterkar til að nýta triptófanið sem best,
- Sojabaunir (allt sem er soja)
- Sesamfræ
- Cachewhnetur
- Jarðhnetusmjör
- Lamb
- Túnfisk/makríl
- Lax/rækjur
- Kjúkling/kalkún
- Brún hrísgrjón
- Brúnar og hvítar baunir
- Möndlur
- Egg
- Hvítlaukur
- Kókosflögur eða mjöl
- 70-80% Súkkulaði
- Spínat
- Kartöflur og sætar kartöflur(í hófi samt)
kær kveðja Eygló Linda
