Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Erum við súr eða basisk?

Sýrustig blóðs á að vera 7,365(ca). Líkaminn gerir allt sem hann getur til að halda Ph gildinu í jafnvægi.  Ph gildi er talið normal í ca 7-7,4. Ef  Ph gildið lækkar (þ.e sýrustigið hækkar) getur það valdið því að æðarnar fara illa og ónæmiskerfið veikist.

Erum við súr eða basisk?

Sýrustig blóðs á að vera 7,365(ca). Líkaminn gerir allt sem hann getur til að halda Ph gildinu í jafnvægi.  Ph gildi er talið normal í ca 7-7,4. Ef  Ph gildið lækkar(þ.e sýrustigið hækkar)getur það valdið því að æðarnar fara illa og ónæmiskerfið veikist. Það myndast kjöraðstæður fyrir bakteríur og sýkla og þarmaflóran fer úr skorðum. Bakteríur þrífast illa í basisku umhverfi þannig að mikilvægt er að halda í þetta jafnvægi að vera með rétt Ph gildi.

Líkaminn verður súr  ef við borðum mikið af unni fæðu, skyndibita, kaffi og  áfengi. Einnig hefur það áhrif ef við erum undir miklu álagi og streitu svo og höfum hvílst illa. Viðbrögð líkamans við offjölgun örvera og t.d kvefbaktería er að leggja slím yfir himnur t.d í nefi og hálsi til að vernda okkur fyrir of háu sýrustigi, þetta á einnig við um offjölgun örveira í meltingarveginum, þar myndast slím sem breyðist yfir þarmatoturnar og veldur minnkaðri upptöku næringarefna. Við þetta upplifum við okkur slöpp og þreytt og sækjum þá oft í meira kaffi, sykur, hvítt hveiti osfrv. eitthvað sem gefur okkur hraða orku. Þannig myndast vítahringur þar sem t,d örveirur eins og candidasveppurinn nærist á sykri.

Líkaminn byrjar að slá niður sýrustigið í blóðinu með því að sækja kalk og magnesíum ásamt fleiri efni í forðabúr líkamans og bæta í blóðið. Ef það dugar ekki er sýrunni ýtt út úr æðakerfinu og geymd á þeim stöðum í líkamanum sem við erum veikust fyrir og þar sem blóðflæði er lítið. Við getum fundið meira til í liðum og vefjum  líkamans  og ef við erum í átaki getur þetta verið ástæðan hversu erfitt er að losna við síðustu 5 kílóin. Sumir verða súrir af of mikilli streitu og ofþjálfun þó svo að matarræðið sé gott. Þegar við erum súr myndast kjöraðstæður fyrir hina ýmsu sjúkdóma og margir hverjir alvarlegir.

Hægt er að fara í Heilsuhúsið og versla svona Ph gildi próf, þannig getum við skoðað hvar við erum stödd á Ph gildi skalanum. Ef við erum of súr þá er það mjög mikilvægt að borða mikið af grænmeti og ávöxtum því það er svo basiskt. Vatnsmelóna er mjög góð og eplaedik til að hjálpa okkur að vera basisk. Einnnig eru til fæðubótaefni sem má taka til að hjálpa okkur.

Ef þið eruð að taka mikið að lyfjum ráðfærið ykkur við lækni áður en þið bætið öðru við.

Heimildir: glósur frá CET ernæringsthearapy og punktar frá matta ósvald

Kær kveðja Eygló Linda