Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Hugarleikfimi

Okkur langar að fjalla um hvernig við getum æft okkur í að stýra hugsunum okkar. Það liggur frekar mikil spenna og smá neikvæðni yfir þjóðfélaginu þessa dagana og við verðum var við streitu og álag í kringum okkur, einnig í okkar eigin lífi.

Hugarleikfimi

 Okkur langar að fjalla um hvernig við getum æft okkur í að stýra hugsunum okkar. Það liggur frekar mikil spenna og smá neikvæðni yfir þjóðfélaginu þessa dagana og við verðum var við streitu og álag í kringum okkur, einnig í okkar eigin lífi. Allur þessi hraði og spenna veldur því oft að við getum stundum misst þolinmæðina og orðið reið, pirruð, vanmáttug osfrv. Um leið og við missum þolinmæðina og hættum að vera í núinu verður allt miklu erfiðara, við bregðumst við umhverfinu og missum hæfileikan til að velja viðbragð. Þegar við erum þolinmóð og veljum viðbragð þá endurspeglar það friðsælan huga okkar. Þegar við náum því getum við tekist á við allar aðstæður án þess að komast í uppnám.

Enn og aftur viljum við minna þig á að hugsun er orsökin, atburðir eru afleiðingin. Ef þú ákveður að vera með í spennunni og neikvæðninni þá munu hlutirnir verða þannig en ef þú ákveður að setja hugsanir þínar í jákvæða hluti þá mun jákvæðni vaxa í kringum þig. Hér eru nokkrir punktar sem þú getur markvisst æft þig í að hugsa um. Gott er að gefa sér 10-30 mín til að hugleiða, oft gott á morgnana til að fara með fallegar hugsanir inn í daginn, öðrum hentar betur að gera þetta áður en farið er að sofa.

Sjáðu fegurðina: Leyfðu huganum að kyrrast, oft gott að fylgjast með öndun, anda djúpt inn um nefið og vel frá, út um munninn. Finnið líkamann slaka á, síðan æfir þú þig í að beina athygli þinni að fegurðinni sem er allt í kring um þig. Það getur verið bros barna þinna, landslag, hlýja vina þinna, hjálpsemi lækna, himininn osfrv

Sjáðu kraftinn: Ef þú upplifir þig úrvinda, þreytta(nn) eða úrræðalausa(nn), þá er gott að einbeita sér að kraftinum sem er í öllu í kringum okkur, kraftinn í lífinu sjálfu, hafinu, jörðinni, stóra tréinu, vindinum. Einnig er hægt að sjá styrkleyka fólks í kringum þig og þú leyfir þér að finna kraftinn innra með þér og magnar hann upp.

Sjáðu góðvild: það er sama hver þú ert eða hvar þú ert, það er mikil góðvild í lífi þínu einmitt núna. Það er af því að þú átt lífið sjálft og það þýðir að þú átt nú þegar alla góðvild í heiminum. Sumir eiga erfitt með að trúa þessu en þetta er dagsatt. Það góða sem þú sækist eftir er hér núna. Það eina sem þú þarft að gera er að hleypa því inn í líf þitt. Skoðaðu í huganum hvaða góðvild þú gætir þegið og gefið öðrum. Æfðu þig í að sjá allt það góða í kringum þig.

Sjáðu viskuna: Finnst þér stundum lítið um skynsama hegðun í kringum þig? Ef svo er þá sérðu jafnvel mest hvað ytri heimurinn endurspeglar fyrir þér af því að þú beinir sjónum þínum að því. Gott er að muna að við höfum öll mismunandi bakgrunn, við höfum öll rétt fyrir okkur og við verðum að skoða alla sem við umgöngumst frá því sjónarhorni.  Gott að æfa sig í því að finna visku í öllum sem þú hittir og umgengst.

Svona getum við haldið áfram að æfa okkur í að beina hugsunum okkar á fallegar brautir. Hægt er að skoða ástina, hagsæld, vináttu, velgengni eins og við gerum hérna fyrir ofan.

Heimildir: Eitt Augnablik  e: Brahma Kumaris og Fleiri skyndibitar fyrir sálina e: Barböru Berger

Kæru vinir við sendum ykkur kærleikskveðju!   Eygló Linda