Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Koffín og áhrif þess á líkamann

Ert þú háður koffíni, kaffi, kók, orkudrykkjum, súkkulaði, eða kakó o.s.frv??

Koffín hefur bein áhrif á miðtaugakerfið. Það orsakar næstum tafarlaust tilfinningu um skýrari hugsun og dregur úr þreytu. Það örvar einnig losun á sykurforða frá lifrinni,sem skýrir upplyftinguna sem fæst af kaffi, kók og súkkulaði (kakó).

Aukaverkanir kaffidrykkju( og annað með koffíni í) vega samt töluvert  þyngra og er það beinlínis skaðvaldur fyrir líkamann, sérstaklega ef við drekkum það í miklu mæli.

·         Koffín er sterkt fíkniefni

  • Losun sykurforða frá lifrinni veldur miklu álagi á innkirtlakerfið
  • Þeir sem drekka mikið kaffi sýna einkenni óróa og taugaspennu
  • Ef snögglega er hætt að drekka kaffi, fer fólk í fráhvarfseinkenni, líkt og þegar fólk hættir á öðrum fíkniefnum( fer eftir hve mikið var drukkið af kaffi áður en hætt)
  • Koffín getur verið eitrað, banvænn skammtur af kaffíni er um það bil 10 g
  • Þunguðum konum er ráðlagt að drekka ekki kaffi, það koffínmagn em fæst úr sirka 4 bollum af kaffi, veldur fæðingagöllum í tilraunadýrum.
  • Vísindamenn við Johns Hopkins Háskólann, hafa sannað að koffín getur raskað DNA-kjarnsýru eftirmyndun
  • Þeim sem drekka fimm kaffibolla á dag, er 50% hættara við hjartaslagi en þeim sem ekkert kaffi drekka
  • Breska læknaritið Lancet hefur sagt sterkt samhengi milli kaffidrykkju og blöðru-og þvagrásarkrabba.  Bandarískir sérfræðingar í meðferð krabbameins telja að óhófleg neysla á metýlaxantína (virk efni í koffíni) geta valdið góðkynjuðum brjóstaæxlum og vandamáli í blöðruhálskirtli
  • Koffín hækkar blóðþrýsting
  • Koffínismi er sjúkdómur. Einkenni sjúkdóms eru lystarleysi, svefnleysi, önuglyndi, kuldaskjálftar og einstaka sinnum lágur líkamshiti

Í hverjum kaffibolla færðu á milli 110 mg og 150 mg af koffíni

Í hverri kókflösku um 70 mg

Í tebolla sem er með koffíni í færðu á milli 30-50 mg

Koffínlaust kaffi er ekki lausnin því þríklóretýl sem upphaflega var notað til þess að fjarlægja koffínið, reyndist valda mikilli útbreyðslu krabbameins í tilraunadýrum. Nú nota framleiðendur efni sem heitir metýlenklóríð, sem er hættuminna en inniheldur sama kolefni og í klór og einkennir flest skordýraeitur.

Heimildir: í nýju og betri Bætiefnabiblíunni

Það er alltaf gamla góða reglan að gæta hófs í öllu því sem við gerum.

Þangað til næst kærleiksknús til ykkar Eygló Linda