Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Kólesteról

Mikið af fólki forðast dásamlegt bragð af ýmiskonar matvörum eins og ostum, smjöri og t.d. eggjum  af því að upplýsingarnar  um kólesteról- og fituinnihald eru mistúlkaðar.

Kólesteról

Mikið af fólki forðast dásamlegt bragð af ýmiskonar matvörum eins og ostum, smjöri og t.d. eggjum  af því að upplýsingarnar  um kólesteról- og fituinnihald eru mistúlkaðar.

Mikið af  heilsumeðvituðu fólk hefur ekki vogað sér að borða egg í áraraðir, af því að þeim hefur verið kennt að egg eru há í Kólesteróli og afleiðingin er offita og hjartaáfall.

Þessi hræðsluáróður er vegna rannsókna sem var gerð árið 1930 á fólki sem neytti stórra skammta af þurkuðu eggjadufti.  Þurrkað eggjaduft er oxuð fita.  Oxuð fita er þránuð fita.  Það eru ekki eggin sem hækka kólesterólið heldur þránaða fitan.  Dr.Kurt Donsbach sannaði þetta í rannsókn á nemendum sem borðuðu tíu nýsoðin  egg á dag í 30 daga án nokkurrar hækkunar á Kólesterólinu.

Það er engin ástæða til að vera ráðvilltur þegar kemur að Kóleseróli vegna þekkingarleysis.

Mannslíkaminn býr til sitt eigið kólesteról og undir eðlilegum kringumstæðum stjórnar hann magninu.  Venjulega kemur 20% af kólesterólinu í líkamanum frá fæðu, meðan líkaminn framleiðir 80%.  Ef fæðuinntakan  inniheldur of lítið kólesteról þá tekur líkaminn við og býr til það sem upp á vantar. Neysla slæmrar fitu eins og mettaðrar og hertrar fitu (trans-fatty-acid) hrindir hins vegar lifrinni af stað í að framleiða meira kólesteról en líkaminn þarfnast.  Þetta er mælanlegt í blóðinu sem hækkandi kólesteról. 

Í dag líta sérfræðingar/fræðimenn ekki á kólesteról sem óvin.

Þeir skilja á milli góðs kólesteróls (cholesterol-high-density lipoproteins) eða kallað HDL og slæms kólesteról (cholesterol-low-density lipoproteins) eða LDL.  Líkaminn þarfnast HDL til að framleiða hormóna, gall og D vítamín og er það (HDL) einnig frumskilyrði til að byggingarefni í frumuhimnunni sé sveiganlegri (betri aðgangur inn t.d. næringarefni og úrgangur út úr frumuhimnunni) einnig fyrir góðri heilastarfemi.

Til að skilja hlutverk HDL og LDL  setjum við þau upp eins og vörubíl sem er fullur af kólesteróli. LDL trukkurinn fer með kólesterólið gegnum blóðsteymið til byggingarstaðar.  Þegar lifrin framleiðir of mikið kólesteról,  LDL, þá reynir trukkurinn að bera stærri farm en hann ræður við og það sem er umfram dettur af á leiðinni og klessist á veggi æðanna(slagæðanna).  Þetta gerir æðarnar þröngar og býr til meiri og meiri vandamál og hindrar eðlilegt blóðstreymi.   Þetta veldur þv að hjartað á erfiðara með að vinna og þarf að leggja harðar að sér, sem leiðir af sér of háan blóðþrýsting.

En HDL trukkurinn á hinn bóginn tekur upp það sem hefur dottið af yfirhlöðnum LDL trukknum.  HDL trukkurinn fer með þetta auka magn til lifrarinnar og sem losar sig við það með gallinu og inn í þarmana.  Trefjar frá matnum sem við erum að melta virka þá eins og hreingerningabursti og út með kólesterólið takk fyrir, góð ástæða að hafa mikið af trefjum í fæðunni okkar.

Elísabet Reynisdóttir og Eygló Linda nemar í næringartherapy CET