Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Lúxus fyrir konur

• Sérhannað fyrir konur sem vilja fá það besta.
• Fitubrennsla, kraftur, liðleiki, styrkur, þol, vöðvaþol og sjálfsstyrking
• Æfingar með líkamanum, notum einnnig bolta, laus lóð, teygjur og fleira mjög fjölbreyttir og skemmtilegir tímar.
* Konur þetta er lúxusinn! Persónuleg þjónusta, persónumiðuð þjálfun.
* Frábær árangur

Innifalið í verði:

3 æfingar í hverri viku með reyndum þjálfara í 4 vikur (mælum með 8- 12 vikum ef þú þarft að breyta alveg um lífstíl til að árangurinn verði varanlegri).
Fitu,- þyngdar-og ummálsmælingar- í upphafi og lok hvers tímabils.
Ítarlegt matarprógram sem hentar þínu markmiði.
Mjög gott aðhald. Fyrirlestur um það hvernig við breytum okkar lífsstíll hvern laugardag eftir að námsskeið hefst ath kl 11:00 þá afhendi ég DVD disk með ítarlegu lesefni og uppskriftum.

Ef þessi hefðbundna aðferð er ekki að duga máttu tala við næringarþerapista og farið er yfir undir fjögur augu hvað gæti verið að hamla árangri.
Tímar kl. 8:10 og 17:10 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga.

Ummæli viðskiptavina um námskeiðið:

- Frábær hreyfing sem er í senn skemmtileg og margbreytileg.  Mikill árangur sem sést strax sé fylgt eftir góðum ráðum sem við fáum svo sannarlega.  Betri líðan á allan veg og mjög svo skemmtilegur félagsskapur.

- Skemmtilegasta líkamsrækt sem ég hef farið í ;-)   Frábærir tímar og góður árangur!

- „Lúxusinn“ eru mjög fjölbreyttir og en samt öflugir tímar.  Persónuleg þjálfun
sem hentar konum á öllum aldri.  Jákvætt og skemmtilegt andrúmsloft og það sem
mér finnst mjög mikilvægt er að það er alltaf mjög góð slökun á eftir hverjum tíma.

 

Eygló Linda kennir Lúxus 1 og 2