Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Rope Yoga

Leiðir af sér aukinn styrk í kvið, heldur líkamsþyngd í skefjum, eykur orku og þol.

Ropeyoga skapar meðvitund um þær andlegu uppsprettur sem í einstaklingnum búa, raunverulega upplifun á „núinu“ og því lífi sem hann velur að lifa hverju sinni.

Rope Yoga er aðferð til að uppgötva, vinna úr og losna undan líkamlegum og andlegum takmörkunum sem yfirleytt eiga rætur sínar að rekja í meðvitaðan ótta, bælingu og ranghugmyndir sem við höfum lengi bælt og haldið föstum í kviði okkar. Það er margsannað mál að það sem við hugsum er sá raunveruleiki sem við búum í.

 • Ropeyoga gefur iðkandanum færi á að vera farvegur breytinga sem leiða til djúpstæðari vellíðunar, persónulegrar velgengni og auðlegðar.
 • Eflir brennslu og flæði,
 • Þróar grunnstyrk kviðvöðva,
 • Eykur orku,
 • Eykur blóðflæði í kvið,
 • Eykur súrefnisupptöku,
 • Eykur upptöku næringarefna,
 • Eflir úrgangslosun,
 • Eykur liðleika,
 • Bætir meltingu,
 • Styrkir alla vöðva líkamans,
 • Eykur hreyfanleika mjaðmagrindar,
 • Eykur sveigjanleika hryggjarsúlunnar,
 • Styrkir grindarbotnsvöðva

 
Innifalið í verði:
6 vikna námskeið 2-3x í hverri viku. 1-1 klst og 20 mín í senn.
Heildrænt æfingakerfi fyrir huga, líkama og sál. Frábær slökun í lok hvers tíma og farið yfir kenningarnar sjö sem er kjarni hugþjálfunar í Rope Yoga.

Kennari:
Eygló