Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Skilyrðislaus ást

Okkur langar til að fjalla aðeins um ástina. Við elskum öll einhvern eða eitthvað. Ef þið eruð í sambandi, gift,  foreldrar eða jafnvel dýraeigendur þá eigum við flest mjög auðvelt með að elska ungabörn og ósjálfbjarga dýr skilyrðislaust. Stundum þegar börn okkar eldast og sambönd eldast breytist samskiftamynstur okkar. 

Skilyrðislaus ást

Okkur langar til að fjalla aðeins um ástina. Við elskum öll einhvern eða eitthvað. Ef þið eruð í sambandi, gift,  foreldrar eða jafnvel dýraeigendur þá eigum við flest mjög auðvelt með að elska ungabörn og ósjálfbjarga dýr skilyrðislaust. Stundum þegar börn okkar eldast og sambönd eldast breytist samskiftamynstur okkar.  Ást okkar til eldri barna og maka fer allt í einu að vera háð skilyrðum. Við viljum fara að breyta eiginleikum þeirra sem við elskum og leyfum okkur að láta hitt og þetta fara í taugarnar á okkur. Við þurfum að gera okkur grein fyrir að annað hvort elskum við viðkomandi með öllum kostum og göllum, eða við erum sjálfselsk og elskum bara sumt og annað ekki. Að elska er ákvörðun. Ef við erum sífellt að reyna að breyta viðkomandi þá erum við orðin sjálfselsk, þá leyfum við ekki þessum einstaklingum að njóta sín og vera það sjálft. Til dæmis ef við erum í sambandi og  viljum helst breyta flestu í fari þess sem við elskum,  gæti verið skynsamlegra að, í fyrsta lagi ath hverju þú getur breytt í þínu fari,  í öðru lagi að finna þér maka sem er líkari því sem þú ert að leita að. Við þurfum að átta okkur á því að við getum aðeins breytt okkur sjálfum ekki öðrum. Ef við erum  t.d með ungling sem hrasar og gerir mistök í lífinu , er skylda okkar foreldrana að hjálpa unglingnum að reisa sig upp og leiðbeina honum hvað  hann eigi svo að gera og hvetja hann áfram af ást og umhyggju. Við getum þessu til stuðnings hugsað okkur þennan ungling þegar hann var lítil(l) og hugsað hvernig við myndum bregðast  við þegar þessi einstaklingur var að læra að ganga. Ef barnið datt þá hjálpuðum við því upp, leiðbeindum því með bros á vör og hrósuðum óspart. Við elskuðum skilyrðislaust og sýndum þolinmæði. Þessa þolinmæði skulum við halda í líka þegar börnin eru orðin eldri og gott að æfa sig í þessari viku, að elska skilyrðislaust alla þá sem eru okkur nánir. Munum að varðveita barnið í okkur og höfum eftirfarandi línur í huga.

Það sem barnið þarfnast

Við reynum að gefa

börnum okkar allt

þótt það eina sem þau þarfnist

sé ást og öryggi.

Eftir: Pam Brown tekið úr bók Kærleikur fyrir okkar öld

 

Kærleikskveðja til ykkar kæru vinir.

Eygló Linda