Markmið Lifandi Húss

..er að rækta hugann, nota líkamann og vera til staðar þegar við æfum. Mátturinn í núinu er öflugur drifkraftur og þegar við náum að nota hann við æfingarnar margfaldast árangurinn.

Þjálfun & næring fyrir konur

Þessir tímar eru hannaðir með það í huga að hver og ein kona gerir æfingarnar á sínum hraða, eftir getu án þess að miða sig við aðra viðskiptavini.  Hnitmiðaðar og mótandi æfingar sem styrkja huga og líkama.  Engin hopp, engin spor, notum djúpöndun og djúpvöðva til að auka brennslu líkamans ásamt jafnvægisæfingum (fundið út hvað hver treystir sér í).  Mjög góðar teygjur og slökun

Persónumiðuð þjálfun fyrir konur sem eru að berjast við t.d mikla yfirvigt og/eða konur með sjúkdóma eins og slæma gigt, vefjagigt, M.S , sykursýki 1 eða 2 o.fl.

A.T.H Takmarkaður fjöldi í hóp og markmið námskeiðsins er að þú byrjar á nýjum lífsstíl sem hjálpar þér að eiga innihaldsríkara líf.  Hver og einn gerir þessa lífstílsbreytingu á þeim hraða sem hentar, við erum öll einstök og þurfum einstaklingsráðgjöf.

Innifalið í 6 vikna námskeiði:

  • Líkamsæfingar 2 sinnum í viku.
  • Sjálfsstyrking, öndunaræfingar o. fl. skemmtilegt 1 sinni í viku.  
  • Vönduð gögn fylgja og  fyrirlestur er í byrjun námsskeiðisins.
  • Næringarþerapía sérsniðin að þér 1 tími frír, endurkoma næstu 6 mánuði á 3.500 kr í stað 7.900
  • Vigtun og mælingar (ef þú vilt). Í byrjun 4 viku hópþerapía (hugsað sem stuðningur við hvor aðra).

Verð aðeins 22.000