Næringarþerapía

Hvað er næringarþerapisti?

Næringarþerapisti leitast við að hjálpa einstaklingnum til að komast í gott jafnvægi, líkamlegt og andlegt. Losna við kvilla, vanlíðan og hjálpa líkamanum til að starfa betur.
Þetta er gert með því að breyta og bæta mataræði einstaklingsins, sem og leiðbeina um inntöku bætiefna þegar það á við.
Næringarþerapisti lítur á líkama og sál sem eina heild og leitast við að hjálpa skjólstæðingum sínum með tilliti til þess.

Næringarþerapía hefur reynst mjög gagnleg hjálp við meðferð ýmissa kvilla og sjúkdóma, sem og fyrir þá sem vilja létta sig eða þyngja. Einnig fyrir þá sem vilja öðlast meiri orku, kraft og lífsgæði.
Fólk þarf alls ekki að vera veikt til að nýta sér næringarþerapíu.
Íþróttafólk, þungaðar konur, vaktavinnufólk og allir sem þurfa sérstaklega að huga að mataræði sínu hafa gagn af ráðgjöf næringarþerapista.